16ágúst

Hér verđ ég eftir 2 sólarhringa...

http://embarqblog.wri.org/wp-content/uploads/2007/04/new-york-city.jpg

http://www.worldexecutive.com/cityguides/pics/new_york/new_york_1.jpg

http://www.arqhys.com/construccion/Empire%20state%20building.jpg

http://www.allaboardchatt.com/images/photos/fifth-avenue.jpg

....envy me bitches ;)
16. ágúst 2007 klukkan 14:05
Tinna Kristinsdóttir
5 athugasemdir
25júlí

Mánađar

Jæja ætli þetta verði ekki bara svona mánaðarblogg eins og hjá honum Þór ;) Stefnir allt í það og vonandi ekki sjaldnar :)

Langaði bara svo að gera svona leitar-síðu-thing eins og margir eru með á blogginu sínu these days, skrifa *nafn* er og taka svo fyrstu niðurstöðuna... here it goes... :P

Tinna er svaka mikil pæja;) Pælir voða mikið í tískunni og kemur aldrei ómáluð í skólann ;)

Jóna er fædd á Akranesi. Eiginmaður hennar er Geir H. Haarde

Helga er borgarstjóri

Salvör er viðskiptafræðingur og hefur lokið meistaranámi í kennslutækni, námsgagnagerð og notkun tæknimiðla í námi og kennslu.

Rósa er ekki svona hress í dag!

Jana: a.k.a. Jana (er fyrir) Banana

Örn er kominn í undanúrlslit í 50m flugsundi, hann er með áttunda besta tíma inn, hann synti á 24,29 sem er nýtt Íslandsmet.

Andrés er þekktur fyrir að skálda í slúðurdálkum blaðsins eftir hentugleika og vinskaps við hina og þessa stjórnmálamenn.

Anna er dáin! Lengi lifi Anna!
ómægoshh!

Guðrún er íþróttfélag starfrækt í Kaupmannahöfn og opið öllum þeim Íslendingum sem vilja hreyfa sig og komast í góðan félagsskap.



...Þar hafiði það
25. júlí 2007 klukkan 13:16
Tinna Kristinsdóttir
12 athugasemdir
25júní

Of langt síđan síđast...

Jæja já! Komið soldið mikið langt síðan eitthvað var skrifað hér síðast. Það er svona helst að frétta að afmælið hennar Jónu var á laugardaginn og vá hvað var gaman :) Takk fyrir mig. Næstu helgi er ég svo að fara eitthvert út úr bænum með Rósu og Jönu, helgina þar á eftir að hitta Borgarnesstelpurnar, helgina þar á eftir í sumó með Heitri Soju, helgina þar á eftir er ég ein heima.. osfrv... endalaust bara. Ætlaði nú bara rétt að kasta kveðju... :P

P.s. þessi frétt var á mbl.is í morgun, ég efast alls ekki um sannleiksgildi hennar ;)

Elsta systkinið gáfaðast

Börn, sem alin eru upp sem elsta barn í systkinahópi, eru líklegri til þess að hafa hærri greindavísitölu heldur en systkini þeirra, segir í norskri rannsókn á áhrifum aldursraðar systkina á greind. Elstu börnin læra af því að kenna yngri systkinum sínum og kemur fram í rannsókninni að elsta barnið, eða barn sem missir elsta systkini sitt og verður elst, fengu fleiri stig í greindavísitöluprófi. Tengslin fundust með því að skoða rúmlega 250.000 norska karlmenn. Þetta kemur fram á fréttvef BBC.

25. júní 2007 klukkan 08:55
Tinna Kristinsdóttir
2 athugasemdir
14júní

ÉG Á NÝJAN BÍL! :)

Já þetta var mjög impulsive buying en ég sá auglýsingu í dag.... og keypti bíl! Daewoo Matiz árgerð 99 úber sætur... og var skírður Flubbi af fyrri eiganda (sem er mjög næs stelpa með sama afmælisdag og ég) og ég ætla bara að halda því nafni sko, hann er algjör snúlli!

Hann er svona, bara dökk dökk blár:


Vúhú....
14. júní 2007 klukkan 01:00
Tinna Kristinsdóttir
Engin athugasemd
12júní

Jájájá

Hallóóó... jæja spurning hvað maður endist lengi í blogginu í þetta sinn ;) Í dag er rosalega gott veður. Það passar einmitt við það að ég er að vinna til 9 í kvöld.... en vonum það verði jafngott á morgun :D Ég er að vinna í síðasta skipti í MasterCard þangað til í ágúst og úff hvað ég er fegin! Ég er alveg á síðustu metrunum, ekki beint hægt að segja að við Sara höfum verið neitt sérlega duglegar í gær! Í gær læsti ég lyklana inni í bílnum.... sem væri svosem ekki það merkilegt ef ég hefði ekki gert það nákvæmlega sama fyrir nokkrum vikum. Þá kom Danni bjargvættur og reddaði málunum með herðatré... Við Andrés og Rósa reyndum það sama í gær (Eða svona Andrés reyndi og Rósa hélt hurðinni og ég sat og gerði ekkert) en það var ekki alveg að ganga. Var samt frekar skemmtilegt og margar góðar setningar eins og "Ég næ honum ekki upp" og "OH hann er svo stífur" og "Þessi er allt of stuttur" voru látnar falla. Fólk var farið að horfa misundarlega á okkur út um gluggana þannig á endanum hringdi ég í svona lása gaur. Sá maður hlýtur að vera með besta tímakaup á landinu ef að 10 sek kosta 5þús kall ;) En ég og Maggi erum allavegana eitt á ný (Maggi er bíllinn minn fyrir þá sem ekki vita).

Jæja svo styttist bara í helgina (eða svona semi... maður má láta sig dreyma)... Öll plön vel þegin... ég segi að við höfum stelpupartý heima hjá Jónu þar sem hún er kona einsömul um þessar mundir.... Jóna hvað segir þú um það? ;)

jæja hafið það gott sykurpúðarnir mínir

Au revoir
12. júní 2007 klukkan 13:34
Tinna Kristinsdóttir
2 athugasemdir
10júní

Halló fólk...

Jæja! Ég er að spá í að gera tilraun númer sirka fimmhundruð til að halda áfram að blogga. Aðalástæðan er sú að nú er loksins komið SUMAR og á sumrin gerir maður eitthvað skemmtlegt og hefur e-ð annað að tala um en skólann! Ullandi Sem er mjög gott. Jæja ég er að minnsta kosti byrjuð að vinna í Stjá, once and again. Og æ það er bara frekar mjög nice... best að reyna ekkert of mikið á heilann Glottandi Sumarið lítur bara mjöööög vel út, sumarbústaður með stelpunum, hitta 6-A-horn gellurnar í júlí, fullt af fylleríum, með Andrési á Noruh Jones (reyndar 2 september en samt gaman) og svo auðvitað New York 18. ágúst! Já ekkert af þessu hljómar mjög illa og eiginlega bara allt mjög skemmtilega þannig ég vona að sumarið verði bara gott!

Well now.. það er sunnudagur svo það er best að vera ekkert að reyna of mikið á sig ;) Er upptekin við að hanga uppí sófa á náttbuxunum :P

-Tinna
10. júní 2007 klukkan 15:01
Tinna Kristinsdóttir
1 athugasemd
24mars

Skóli skóli skóli

Svona til að láta ykkur vita, þá mun ég örugglega vera frekar andlaus á næstunni hvað varðar þetta blogg. Prófin eftir rúma viku og ekki mikið annað sem kemst að en skólabækurnar þessa dagana, auðvitað á síðustu stundu eins og svo oft áður ;) Var annars að klára fyrirlesturinn í vörustjórnun og er bara helv... ánægð. Kennarinn spurði bara sanngjarnra spurninga og tók okkur ekki í gegn eins og svo marga aðra hópa :D Fjármálaverkefnið búið, einstaklingsverkefnið í vörustjórnun komið langt á leið... já bara allt í rétta átt held ég. Nú er bara helv.... hópverkefnið í mannauðsstjórnun eftir og þá er þetta svo gott sem komið! :)

Eeeeen efast um að þið nennið að hlusta á meir um skólann þannig þetta nægir í bili... you all got my number ;)

Over and out
24. mars 2007 klukkan 10:50
Tinna Kristinsdóttir
Engin athugasemd
20mars

Dćrćrććć

Halló... Nei ég er ekki strax búin að gefast upp ;) Jæja where were we... já! Á laugardaginn fór ég með Rósu á Kaupþingsárshátíðina og SJITT hvað það var geðððððveikt. Það var Eurovisionþema og skemmtiatriðin tengdust þeim öll, Páll Óskar, Selma, Eiríkur Hauksson, Icy, Stebbi og Eyvi... og svo Olsen brothers heheh... Og maturinn... úff don't get me started sko! Þetta var amk besti matur sem ég hef borðað bara.. ever. Sjitt. Og mjög mikið af fríu áfengi, sem er gott. Svo var manni bara skutlað heim til sín ókeypis í rútu, ekki slæmt. Í gær byrjaði svo venjulega lífið aftur eftir smá "frí", því 70% af bekknum var útí London frá miðvikudegi og þangað til á sunnudaginn, sem þýddi frí fyrir alla hina. Ég ætlaði sko aldeilis að vera dugleg að læra, en ákvað svo að það væri *skynsamlegra* að nýta þetta frí í afslöppun ;) Úff nú eru sko bara 2 VIKUR í próf hjá mér, meira ruglið.

Annars var ég í vinnunni í gær as usual, og vitiði þessi vinna er skemmtilegri en ykkur grunar. Maður talar við svo mikið af allskonar skrýtnu og skemmtilegu fólki, og í gær var alveg einstaklega spes dagur í þeim efnum. Einn spurði mig alltaf til baka, þannig við vorum bara farin að spjalla "Já ég er í Borgó... en ert þú í skóla... já ertu í viðskiptafræði já, þekkiru Kára vin minn, hann var í skóla á Laugum... já einmitt" En bestur var samt kreiiisí töffarinn ('88 módel) sem keypti af mér.. "ef þú segir mér hvað þú ert gömul"... og endaði svo samtalið með "heyyyy sæta... hvað heitiru... já ok, þú ert með númerið mitt, hringdu í mig ;)"..... Hahaha oh well ég græddi allavega á honum :P

Jæja látum þetta duga í bili :)

-Tinna
20. mars 2007 klukkan 11:51
Tinna Kristinsdóttir
4 athugasemdir
15mars

Jahérna

Mér finnst asnalegt að vera nískur. Eiginlega bara mjög asnalegt. Og sérstaklega þegar maður lætur það berlega í ljósi. Þess vegna fannst mér mjög mörg asnaleg moment útí Århus í haust, því danirnir voru ekkert að fela það að það var allt á ódýrasta máta (ergo cabin 1 ferðin og allt drullulabbið). Það er kannski ástæðan fyrir því að ég myndi ALDREI á lífsleiðinni láta mér detta það í hug að tína upp flöskur á förnum vegi (hvað þá gramsa í ruslatunnum eins og virðist vera nokkuð inn hjá gömlum köllum og tælenskum konum niðrí bæ um helgar). Anywho, í gær var ég að bíða eftir strætó. Sem er svosem ekkert merkilegt, nema allt í einu stoppar bíll útá miðri götu. Ég hugsaði að hann hlyti að vera bensínlaus eða bilaður, og var rétt svo byrjuð að vorkenna gaurnum þegar hann vippar sér út (n.b. þessi gaur var í mesta lagi 30 ára) tekur upp EINA TÓMA HÁLFSLÍTERS KÓKFLÖSKU, hendir henni inn í bílinn og keyrir af stað.... og já ekki nóg með það, það voru bílar farnir að bíða í röð fyrir aftan hann.... en hvað veit ég, sumir leggja greinilega ýmislegt á sig fyrir 9 kr....
15. mars 2007 klukkan 18:24
Tinna Kristinsdóttir
3 athugasemdir
13mars

Stundum dettur manni eitthvađ sniđugt í hug ţegar manni leiđist!

...eins og tildæmis að byrja að blogga aftur!!! Híhíhí já ég átti nú varla von á þessu sjálf but here goes nothing... hmm svosem örugglega margt að frétta síðan í SEPTEMBER þegar ég skrifaði síðast, en þar sem ég reikna fastlega með að flestir sem lesi þessa síðu þekki mig ætla ég ekkert að vera að útlista það neitt mjög nákvæmlega! Allt gengur bara fínt og life is peachy... ég er bara mjög ánægð með allt og búin að venja mig á að hugsa jákvætt og viti menn, allt gengur svo miklu miklu betur. Sérstaklega eftir að ég horfði á mynd sem heitir Secret hjá Andrési (sem allir ættu að horfa á btw). Ég keypti mér meiraðsegja blóm um daginn og það er ennþá lifandi, þvílík framför ;). Svo gengur geðveikt vel í vinnunni. Skólinn.. jahh... jájá... maður er alltaf allur í því að redda hlutum á síðustu stundu og engin breyting á því á þessari önn hugsa ég, ætli maður verði ekki bara að frumlesa slatta rétt fyrir próf eins og vanalega... en eins og máltakið segir... ÞETTA REDDAST! :)

Ég er búin að setja inn smá myndir, eða eins margar og ég gat áður en ég þarf að fara að borga fyrir plássið :) Þið getið kíkt, þetta eru myndir síðan á menningarnótt, verslunarmannahelginni og svo árshátíð Viðskiptadeildar sem var haldin sl. föstudag. Á næsta laugardag er ég hinsvegar að fara á árshátíð Kaupþings með Rósu sem var svo sæt að bjóða mér með :) Og vafalítið verð ég í ruglinu á föstudaginn, líklegast má finna mig á 11unni if you're downtown.

That's all í bili krakkar mínir :)

-Tinna!
13. mars 2007 klukkan 18:05
Tinna Kristinsdóttir
Almennt
4 athugasemdir

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Könnun

Hversu ánćgđ/ur ertu međ ađ ég sé aftur byrjuđ ađ blogga